Opnið gluggann Forðafl. til ráðstöfunar.

Tilgreinir samantekt um getu forðaflokks. Glugganum er skipt niður í línur sem sýna eftirfarandi atriði: heildarafkastagetuna, ráðstafað magn á verk í pöntun, magn til ráðstöfunar eftir tilboðum, magn sem úthlutað er á verk í tilboði og eftirstandandi afkastagetu eftir öll verk sem eru í tilboði eða pöntun.

Í dálknum Tímabil eru dagsetningar sem eru ákvarðaðar með því tímabili sem er valið. Tímabilinu er breytt í reitnum Skoða eftir.

Þegar skrunað er upp og niður eru upphæðirnar reiknaðar eftir því tímabili sem er valið.

Dálkarnir í glugganum sýna eftirfarandi.

Reitur Lýsing

Upphaf tímabils

Tilgreinir raðir af dagsetningum eftir tilteknu tímabili.

Heiti tímabils

Tilgreinir heiti tímabilsins.

Geta

Tilgreinir heildarafkastagetu tilsvarandi tímabils sem fært er inn í gluggann Geta forðaflokks.

Magn í pöntun

Tilgreinir fjölda mælieininga sem úthlutað er á verk með stöðuna Pöntun.

Til ráðstöfunar eftir pöntun

Til ráðstöfunar eftir pöntun = Geta --- Magn í pöntun

Verktilboð - úthlutun

Merkir upphæð mælieininga sem úthlutað er í verk með stöðuna Tilboð.

Nettó til ráðstöfunar

Nettó til ráðstöfunar = Afkastageta - Magn í pöntun - Úthlutun verktilboða

Ekki er hægt að breyta eða eyða efni þessa glugga.

Ábending

Sjá einnig